Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 19. desember 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Arsenal mætir Tottenham aftur
Mynd: Getty Images
Síðustu tveir leikir 8-liða úrslita enska deildabikarsins fara fram í kvöld og er hægt að búast við mikilli skemmtun.

Arsenal tekur á móti Tottenham á Emirates í annað sinn í desember en þeir rauðklæddu höfðu betur í deildinni og unnu frækinn 4-2 sigur.

Hægt er að búast við mikilli róteringu í báðum liðum fyrir leik kvöldsins en Arsenal á næst heimaleik í deildinni gegn Burnley á laugardaginn á meðan Tottenham heimsækir Everton á sunnudaginn.

Chelsea tekur þá á móti Bournemouth í öðrum spennandi leik og keppast liðin um undanúrslitasæti við hlið Manchester City og Burton, sem leikur í C-deildinni.

Leikir kvöldsins:
19:45 Arsenal - Tottenham (Stöð 2 Sport)
19:45 Chelsea - Bournemouth (Stöð 2 Sport 3)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner