Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 19. desember 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
HM félagsliða í dag - Real Madrid mætir Kashima í undanúrslitum
Kashima er með frábæra stuðningsmenn.
Kashima er með frábæra stuðningsmenn.
Mynd: Getty Images
Real Madrid mætir til leiks í HM félagsliða í dag. Spænska stórveldið mætir einu besta félagsliði Japans, Kashima Antlers, í undanúrslitaleikn í Zayed Sports City leikvanginum í Abu Dhabi.

Kashima sló mexíkóska félagið Chivas úr leik með 3-2 sigri í síðustu umferð.

Kashima endaði í þriðja sæti japönsku deildarinnar en vann asísku Meistaradeildina og öðlaðist þannig þátttökurétt á HM.

Real Madrid vann Meistaradeild Evrópu og fékk þannig þátttökurétt í undanúrslitunum.

Real hefur titil að verja eftir að hafa unnið HM síðustu tvö ár, en spænska stórveldið lagði Kashima eftir framlengdan úrslitaleik 2016 þar sem Cristiano Ronaldo kom sínum mönnum til bjargar með þrennu.

Leikur dagsins:
16:30 Kashima - Real Madrid
Athugasemdir
banner
banner
banner