Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 12. janúar 2019 06:00
Arnar Helgi Magnússon
Leicester hafnar tilboði Huddersfield í Okazaki
Mynd: Getty Images
Leicester City er búið að hafna einu tilboði Huddersfield í framherjann Shinji Okazaki. Þessu halda breskir fjölmiðlar fram.

David Wagner, stjóri Huddersfield er búinn að gefa það út að hann ætli að styrkja leikmannahópinn enn frekar en hann er nú þegar búinn að fá Jason Puncheon á láni frá Crystal Palace og Rajiv Van La Parran frá Middlesbrough.

Okazaki er búinn að spila sextán leiki á tímabilinu fyrir Leicester en ekki enn náð að skora. Hann er búinn að leggja upp eitt mark. Leicester mætir Southampton á morgun.

Huddersfield situr í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar, átta stigum frá öruggu sæti en liðið mætur Cardiff á morgun.

Huddersfield hefur skorað fæst mörk allra liða í deildinni eða þrettán talsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner