Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   fös 11. janúar 2019 19:32
Magnús Már Einarsson
Gummi Tóta: Var farinn að hugsa hvernig ég ætti að fagna
Icelandair
Gummi Tóta með boltann í leiknum í kvöld.
Gummi Tóta með boltann í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
„Mér fannst frammistaðan flott, sérstaklega í fyrri hálfleik. Ég held að maður verði að vera sáttur við úrslitin. Þetta er hörkulið sem við vorum að spila við," sagði Guðmundur Þórarinsson við Fótbolta.net eftir 2-2 jafntefli Íslands og Svíþjóðar í Katar í kvöld.

„Það er frábært að fá að spila landsleik, það er langt síðan síðast. Aðstæðurnar eru til fyrirmyndar og þetta var geggjað."

Guðmundur var mjög ógnandi á vinstri kantinum í fyrri hálfleik og komst nálægt því að skora en Oscar Linner í marki Svía varði vel.

„Ég var farinn að hugsa hvernig ég ætti að fagna markinu. Þetta var frábær varsla og það var svekkjandi að sjá hann ekki inn. Við fengum dauðafæri upp úr horninu í kjölfarið en svona er þetta í fótbolta, það er stutt á milli. Auðvitað er grátlegt að ná ekki fyrsta landsliðsmarkinu en það kemur bara seinna."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner