Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 11. janúar 2019 22:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Faxaflóamótið: Keflavík vann ÍBV
Sveindís Jane skoraði í kvöld
Sveindís Jane skoraði í kvöld
Mynd: Knattspyrnudeild Keflavíkur
Keflavík 4 - 1 ÍBV
1-0 Natasha Moraa Anasi (‘9)
1-1 Markaskorara vantar (21)
2-1 Dröfn Einarsdóttir (’40)
3-1 Sveindís Jane Jónsdóttir (´45)
4-1 Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir (’50)

Keflavík mætti í kvöld ÍBV í Reykjaneshöllinni. Þetta var fyrsti leikur liðanna í Faxaflóamótinu. Liðin leika í A-riðli.

Natasha Anasi skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Keflavík en ÍBV náði að jafna á 21. mínútu. Dröfn Einarsdóttir og Sveindís Jónsdóttir skoruðu báðar fyrir Keflavík áður en hálfleikurinn var úti.

Arndís Ingvarsdóttir skoraði lokamark leiksins fyrir Keflavík á 50. mínútu og unnu því Keflvík þennan fyrsta leik liðanna í mótinu. Með þessum sigri komst Keflavík á topp riðilsins á markatölu. Breiðablik og HK/Víkingur eru einnig með þrjú stig en ÍBV er þó ekki á botninum þar sem að Stjarnan hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum.

Bæði þessi lið, Keflavík og ÍBV leika í Pepsi deild kvenna á komandi leiktíð. Liðin eiga næst leik laugardaginn nítjánda janúar en þá mætir Keflavík liði Selfoss og ÍBV mætir HK/Víking.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner