lau 12. janúar 2019 11:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið West Ham og Arsenal: Nasri byrjar - Özil ekki með
Nasri mætir gömlu félögunum í dag.
Nasri mætir gömlu félögunum í dag.
Mynd: Getty Images
Fyrsti leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni er Lundúnaslagur West Ham og Arsenal á Ólympíuleikvanginum í Lundúnum. Leikurinn hefst klukkan 12:30.

Fyrir leikinn er Arsenal í fimmta sæti, þremur stigum á eftir Chelsea í fjórða sæti og þremur stigum á undan Manchester United í sjötta sæti. West Ham er í tíunda sæti.

West Ham hafnaði á dögunum tilboði í Marko Arnautovic frá Kína, en Arnautovic er í byrjunarliði West Ham í dag. Samir Nasri byrjar þá gegn sínum gömlu félögum í Arsenal.

Arsenal er með þriggja manna varnarlínu með Maitland-Niles og Kolasinac sem vængbakverði. Lacazette og Aubameyang byrja frammi, en Mesut Özil er ekki í hóp. Özil æfði alla vikuna en er samt ekki í hóp.

Hector Bellerin er í hóp hjá Arsenal eftir að hafa setið upp í stúku undanfarnar vikur.

Byrjunarlið West Ham: Fabianski, Zabaleta, Ogbonna, Diop, Cresswell, Noble, Rice, Antonio, Nasri, Anderson, Arnautovic.
(Varamenn: Adrian, Masuaku, Obiang, Snodgrass, Diangana, Perez, Carroll)

Byrjunarlið Arsenal: Leno, Mustafi, Koscielny, Sokratis, Maitland-Niles, Xhaka, Guendouzi, Kolasinac, Iwobi, Lacazette, Aubameyang.
(Varamenn: Cech, Bellerin, Lichtsteiner, Monreal, Torreira, Ramsey, Nketiah)



Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 20 4 4 70 24 +46 64
2 Liverpool 28 19 7 2 65 26 +39 64
3 Man City 28 19 6 3 63 28 +35 63
4 Aston Villa 29 17 5 7 60 42 +18 56
5 Tottenham 28 16 5 7 59 42 +17 53
6 Man Utd 28 15 2 11 39 39 0 47
7 West Ham 29 12 8 9 46 50 -4 44
8 Brighton 28 11 9 8 50 44 +6 42
9 Wolves 28 12 5 11 42 44 -2 41
10 Newcastle 28 12 4 12 59 48 +11 40
11 Chelsea 27 11 6 10 47 45 +2 39
12 Fulham 29 11 5 13 43 44 -1 38
13 Bournemouth 28 9 8 11 41 52 -11 35
14 Crystal Palace 28 7 8 13 33 48 -15 29
15 Brentford 29 7 5 17 41 54 -13 26
16 Everton 28 8 7 13 29 39 -10 25
17 Luton 29 5 7 17 42 60 -18 22
18 Nott. Forest 29 6 7 16 35 51 -16 21
19 Burnley 29 4 5 20 29 63 -34 17
20 Sheffield Utd 28 3 5 20 24 74 -50 14
Athugasemdir
banner
banner
banner