Síðasti leikurinn í ensku úrvalsdeildinni þennan laugardaginn er viðureign Chelsea og Newcastle á Stamford Bridge. Leikurinn hefst klukkan 17:30.
Fyrir leikinn er Chelsea í fjórða sæti með 44 stig, en Newcastle í 15. sæti með 18 stig.
Alvaro Morata er ekki með Chelsea vegna meiðsla og byrja Willian, Pedro og Eden Hazard allir. Olivier Giroud er á bekknum ásamt hinum efnilega Callum Hudson-Odoi.
Það er nokkuð um meiðsli hjá Newcastle og er Jonjo Shelvey til að mynda frá. Sean Longstaff byrjar sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni.
Hér að neðan eru byrjunarliðin.
Byrjunarlið Chelsea: Kepa, Azpilicueta, Rudiger, Luis, Alonso, Jorginho, Kante, Kovacic, Pedro, Willian, Hazard.
(Varamenn: Caballero, Christensen, Emerson, Ampadu, Barkley, Hudson-Odoi, Giroud)
Byrjunarlið Newcastle: Dubravka, Yedlin, Lascelles, Lejeune, Clark, Ritchie, Hayden, Longstaff, Atsu, Perez, Rondon.
(Varamenn: Woodman, Sterry, Manquillo, Fernandez, Schar, Murphy, Joselu)
Athugasemdir