Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 12. janúar 2019 17:06
Ívan Guðjón Baldursson
Grikkland: Ögmundur hélt hreinu í sannfærandi sigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
AEL Larissa 3 - 0 Smyrnis
1-0 Fatjon Andoni ('6)
2-0 Marko Numic ('63)
3-0 Marko Numic ('77)

Ögmundur Kristinsson hélt hreinu í sannfærandi sigri AEL Larissa í gríska boltanum.

Larissa var betra liðið allan leikinn og þurfti Ögmundur aðeins að verja tvö skot frá gestunum.

Fatjon Andoni kom heimamönnum yfir snemma leiks og innsiglaði Marko Numic sigurinn með tvennu eftir leikhlé.

Larissa er með 18 stig eftir 15 umferðir, 7 stigum frá falli. Smyrnis situr á botninum með 5 stig.
Athugasemdir
banner
banner