Argentínski miðjumaðurinn Lenadro Paredes bíður óþreyjufullur eftir félagaskiptum til Chelsea sem var að losa sig við Cesc Fabregas.
Paredes er 24 ára gamall og er að öllum líkindum á leið til Chelsea ásamt ítalska miðjumanninum Nicoló Barella.
Paredes er lykilmaður í liði Zenit sem trónir á toppi rússnesku úrvalsdeildarinnar og birti hann tíst í dag sem býður hann velkominn til Chelsea.
Juventus og Real Madrid eru meðal félaga sem hafa verið orðuð við Paredes en hann mun þess í stað berjast við menn á borð við Ross Barkley og Mateo Kovacic um byrjunarliðssæti.
Leandro Paredes, no debatehttps://t.co/cSfsCbaBmK
— NB (@NinoBrown0728) January 12, 2019
Athugasemdir