Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 12. janúar 2019 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Juve lenti ekki í vandræðum gegn Bologna
Kean innsiglaði sigurinn í upphafi síðari hálfleiks.
Kean innsiglaði sigurinn í upphafi síðari hálfleiks.
Mynd: Getty Images
Bologna 0 - 2 Juventus
0-1 Federico Bernardeschi ('9)
0-2 Moise Kean ('49)

Juventus er komið í 8-liða úrslit ítalska bikarsins eftir þægilegan sigur á útivelli gegn Bologna.

Federico Bernardeschi gerði fyrsta mark leiksins eftir skelfileg mistök Angelo da Costa í marki heimamanna.

Ungstirnið Moise Kean tvöfaldaði forystuna þegar hann fylgdi eftir skoti Douglas Costa í upphafi síðari hálfleiks.

Heimamenn áttu ekki stakt skot sem rataði á rammann í leiknum og fékk Cristiano Ronaldo að spila síðasta hálftímann.

Juve mætir annað hvort Atalanta eða Cagliari í næstu umferð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner