Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 16. janúar 2019 14:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Balotelli að skipta um félag í Frakklandi
Mynd: Getty Images
Ítalski sóknarmaðurinn Mario Balotelli færist nær því að ganga í raðir Marseille eftir því sem Sky Sports á Ítalíu kemst næst.

Balotelli, sem er fyrrum leikmaður Inter, Man City og Liverpool, hefur ekki skorað á þessu tímabili en Marseille reyndi að fá hann síðasta sumar.

Patrick Vieira, stjóri Nice, og Balotelli voru samherjar hjá Inter og Manchester City en samband þeirra hefur verið erfitt í nokkrar vikur.

Hinn 28 ára gamli Balotelli verður samningslaus eftir tímabilið, en svo virðist sem hann fái að fara til Marseille núna. Hann mun gera samning út þessa leiktíð.

Marseille er í níunda sæti frönsku úrvalsdeildarinnar á meðan Nice er í því áttunda.
Athugasemdir
banner
banner