mið 16. janúar 2019 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dortmund ætlar ekki að selja fleiri leikmenn til Bayern
Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund hefur tekið þá ákvörðun að missa ekki fleiri leikmenn til Bayern München. Frá þessu segir Sport Bild í Þýskalandi.

Mario Götze, Robert Lewandowski og Mats Hummels hafa allir farið frá Dortmund til Bayern, en Dortmund ætlar að sjá til þess að álíka gerist ekki aftur þar sem félagið vill halda áfram að keppa við Bayern á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar.

Nýverið leyfði Dortmund bandaríska kantmanninum Christian Pulisic að yfirgefa félagið, með því skilyrði að hann myndi ekki fara til Bayern. Pulisic var seldur til Chelsea.

Dortmund er sem stendur á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar með sex stiga forskot á Bayern.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner