mið 16. janúar 2019 21:30
Brynjar Ingi Erluson
Allegri: Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að við keyptum Ronaldo
Massimo Allegri og Cristiano Ronaldo
Massimo Allegri og Cristiano Ronaldo
Mynd: Getty Images
Massimo Allegri, þjálfari Juventus á Ítalíu, var í skýjunum með fyrsta titil ársins er liðið vann AC Milan 1-0 í Sádi Arabíu í kvöld en leikið var um Ofurbikarinn.

Cristiano Ronaldo skoraði sigurmark Juventus þegar hálftími var eftir en markið kom með skalla eftir sendingu frá Miralem Pjanic.

Ronaldo var keyptur frá Real Madrid í sumar og hefur þegar reynst Juventus vel á tímabilinu.

„Við keyptum Ronaldo einmitt af þeirri ástæðu að hann getur ráðið úrslitum leikja. Hann skorar mikilvæg mörk og allt liðið skilaði góðri frammistöðu í dag," sagði Allegri.

„Það voru nokkrar góðar skyndisóknir og við áttum góð færi eins og þegar markið hjá Paulo Dybala var dæmt af. Við héldum áfram að færa boltann hratt á milli manna," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner