Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 17. janúar 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Perotti missir af næstu leikjum Roma
Mynd: Getty Images
Kantmaðurinn öflugi Diego Perotti verður ekki með í næstu tveimur leikjum Roma vegna meiðsla.

Perotti er búinn að missa af nánast öllu tímabilinu hingað til vegna þrálátra vöðvameiðsla sem blossuðu aftur upp á dögunum.

Sky Sport Italia segir að Argentínumaðurinn knái missi af næstu tveimur leikjum liðsins hið minnsta, gegn Torino og Atalanta.

Hann gæti því verið klár fyrir stórleikinn gegn Milan sem fer fram 2. febrúar.

Roma hefur ekki verið að gera sérlega góða hluti á tímabilinu en er þó aðeins tveimur stigum frá Meistaradeildarsæti sem stendur.
Athugasemdir
banner
banner