Mirror heldur því fram að minnst tólf úrvalsdeildarfélög séu að fylgjast með sóknarmanninum unga Che Adams.
Adams skoraði eina mark Birmingham í 1-2 tapi gegn Middlesbrough á laugardaginn og voru tólf úrvalsdeildarfélög sem sentu njósnara á leikinn.
Adams er 22 ára gamall og hafnaði félagið 5 milljón punda boði frá Fulham í júlí 2017.
Adams er kominn með 13 mörk í 27 deildarleikjum fyrir Birmingham á tímabilinu og hafa bestu lið Championship deildarinnar einnig áhuga á þjónustu hans.
Athugasemdir