Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 17. janúar 2019 11:30
Magnús Már Einarsson
Kiko Casilla í Leeds (Staðfest)
Marcelo og Kiko Casilla fagna.
Marcelo og Kiko Casilla fagna.
Mynd: Getty Images
Leeds United hefur fengið markvörðinn Kiko Casilla sínar raðir frá Real Madrid.

Hinn 32 ára gamli Casilla var þriðji markvörður Real á eftir Thibaut Courtois og Keylor Navas.

Casilla hefur verið hjá Real Madrid í fjögur ár en ekki spilað mjög mikið á þeim tíma.

Leeds er með fjögurra stiga forskot á toppi Championship deildarinnar og stefnir hraðbyri á úrvalsdeildina.

Marcelo Bielsa, stjóri liðsins, vildi styrkja markvarðarstöðuna í þessum mánuði og hann hefur nú náð því markmiði sínu.

Athugasemdir
banner
banner
banner