Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 17. janúar 2019 15:21
Magnús Már Einarsson
Viðar Ari til Sandefjord (Staðfest)
Viðar Ari Jónsson.
Viðar Ari Jónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hægri bakvörðurinn Viðar Ari Jónsson hefur gengið til liðs við Sandefjord sem féll úr norsku úrvalsdeildinni síðastliðið haust.

Viðar Ari kemur til Sandefjord frá Brann en hann kom þangað frá Fjölni fyrir tveimur árum.

Viðar Ari náði ekki að festa sig í sessi í öflugu liði Brann en síðastliðið sumar var hann láni hjá FH í Pepsi-deildinni.

„Viðar hefur verði í erfiðri samkeppni hjá okkur. Núna fer hann til félags þar sem hann fær reglulegri spiltíma," sagði Rune Soltvedt, yfirmaður íþróttamála hjá Sandefjord.

Emil Pálsson spilaði með Sandefjord á síðasta tímabili og hann og Viðar verða nú liðsfélagar.

Emil verður þó ekki leikfær fyrr en í sumar en hann sleit hásin í síðasta mánuði.
Athugasemdir
banner
banner