Sky greinir frá því að Cardiff sé búið að komast að samkomulagi við franska félagið Nantes um kaup á Emiliano Sala.
Sala er 28 ára gamall sóknarmaður frá Argentínu sem er meðal markahæstu manna frönsku deildarinnar á tímabilinu.
Cardiff þarf að bæta félagsmet til að kaupa Sala og segir Sky kaupverðið vera 18 milljónir punda.
Velska félagið vill fá leikmanninn í sínar raðir fyrir fallbaráttuslaginn gegn Newcastle um helgina.
Nantes vill þó ekki leyfa honum að fara fyrr en eftir helgi, því næsti leikur er gegn Angers í fallbaráttunni.
Athugasemdir