Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 17. janúar 2019 22:38
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu mörkin: Dembele með ótrúleg heppnismörk
Mynd: Getty Images
Barcelona komst áfram í spænska bikarnum í kvöld þökk sé Ousmane Dembele og Lionel Messi sem sáu um markaskorunina í 3-0 sigri gegn Levante.

Barca var í hættu á að detta úr leik eftir 2-1 tap á útivelli í fyrri leiknum en nú er liðið búið að tryggja sig áfram.

Dembele gerði fyrstu tvö mörk leiksins með stuttu millibili eftir hálftíma af leiknum, en bæði mörkin voru afar heppileg fyrir franska framherjann.

Messi átti stóran þátt í báðum mörkunum sem er hægt að sjá hér fyrir neðan. Í fyrra markinu sparkaði varnarmaður Levante knettinum í Dembele og þaðan fór hann inn. Í seinna markinu hitti Dembele boltann illa og lét verja frá sér, en snúningurinn sem kom á knöttinn fleytti honum yfir línuna.











Athugasemdir
banner
banner
banner