Velski miðjumaðurinn Aaron Ramsey mun fá rosalega launahækkun þegar hann yfirgefur Arsenal fyrir Juventus eftir tímabilið.
Ramsey hefur þegar samið við Ítalíumeistarana og fer á frjálsri sölu þegar samningur hans við Arsenal er runninn út.
Þar sem Juventus þarf ekki að kaup Ramsey þá fær leikmaðurinn gríðarlega launahækkun með því að fara til Tórínó.

Hann er með 110 þúsund pund í vikulaun en hjá Juventus munu laun hans næstum þrefaldast.
Samkvæmt The Times mun Ramsey gera fjögurra ára samning sem færa honum 300 þúsund pund í vikulaun. Hann verður einn launahæsti breski leikmaður heims.
Þess má geta að launahæsti leikmaður Arsenal, Mesut Özil, fær 50 þúsundum punda meira á viku en Ramsey fær þegar hann fer til Juventus.
Athugasemdir