Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 18. janúar 2019 17:30
Elvar Geir Magnússon
Ráðlagt af Mourinho að yfirgefa Katar
Almoez Ali er áhugaverður leikmaður.
Almoez Ali er áhugaverður leikmaður.
Mynd: Getty Images
Riðlakeppni Asíubikars landsliða er lokið en umtalaðasti leikmaður mótsins til þess er hinn 22 ára Almoez Ali, sóknarmaður landsliðs Katar.

Ali skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri í grannaslag gegn Sádi-Arabíu í gær en Katar vann riðil sinn og mætir Írak í 16-liða úrslitum.

Ali hefur skoað sjö mörk á mótinu og hlotið mikið lof, þar á meðal frá Jose Mourinho sem var sérfræðingur beIN Sports sjónvarpsstöðvarinnar á leiknum í gær.

„Almoez Ali er frábær leikmaður sem getur spilað í Evrópu. Í hreinskilni sagt þá er deildin í Katar ekki keppni sem hann getur þróast í," segir Mourinho.

Almoez Ali fæddist í Súdan en hefur farið í gegnum Aspire Akademíuna í Katar. Hann hefur skorað 17 mörk í 31 landsleik fyrir Katar og spilar í landinu með Al-Duhail.


Athugasemdir
banner