Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. janúar 2019 08:45
Fótbolti.net
Orri og enski boltinn á X977 í dag
Orri verður gestur þáttarins.
Orri verður gestur þáttarins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elvar Geir Magnússon heldur um stjórnartaumana í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag laugardag. Þátturinn er að vanda milli 12 og 14.

Tómas Þór Þórðarson er áfram í Þýskalandi að fylgja strákunum okkar í handboltalandsliðinu. Tom verður á línunni í sérstöku handboltahorni þáttarins!

Leikir helgarinnar í enska boltanum verða skoðaðir, sérstaklega viðureign Arsenal og Chelsea. Daníel Geir Moritz spáir í spilin með Elvari.

Hverjir eru fimm bestu markverðir heims í dag? Runólfur Trausti Þórhallsson, markvarðasérfræðingur, segir sitt álit og kemur með topp fimm lista.

Þá verður Orri Sigurður Ómarsson sérstakur gestur þáttarins. Orri gekk nýverið aftur í raðir Valsmanna.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner