Hoffenheim 1 - 3 Bayern
0-1 Leon Goretzka ('34 )
0-2 Leon Goretzka ('45 )
1-2 Nico Schulz ('59 )
1-3 Robert Lewandowski ('87 )
0-1 Leon Goretzka ('34 )
0-2 Leon Goretzka ('45 )
1-2 Nico Schulz ('59 )
1-3 Robert Lewandowski ('87 )
Bayern München er í góðum gír í þýsku deildinni en liðið vann 3-1 sigur á Hoffenheim í kvöld.
Þýski miðjumaðurinn Leon Goretzka kom gestunum yfir á 34. mínútu áður en hann bætti við öðru marki undir lok fyrri hálfleiks. Þess má til gamans geta að hann skoraði tvö mörk á ellefu mínútum í kvöld en 2 mörk yfir allt síðasta ár.
Nico Schulz minnkaði muninn fyrir Hoffenheim eftir frábæra skyndisókn áður en Robert Lewandowski gulltryggði sigur Bayern á 87. mínútu.
Lokatölur 3-1 fyrir Bayern sem er í 2. sæti með 39 stig, þremur stigum á eftir toppliði Borussia Dortmund. Hoffenheim er í 7. sæti með 25 stig.
Athugasemdir