Getafe 4 - 0 Alaves
1-0 Jaime Mata ('33 , víti)
2-0 Jorge Molina ('46 )
3-0 Jorge Molina ('55 )
4-0 Jaime Mata ('88 )
1-0 Jaime Mata ('33 , víti)
2-0 Jorge Molina ('46 )
3-0 Jorge Molina ('55 )
4-0 Jaime Mata ('88 )
Getafe nálgast fimmta sætið eftir 4-0 sigur á Deportivo Alaves í spænsku fyrstu deildinni í kvöld en nú er aðeins stig á milli liðanna.
Jamie Mata kom Getafe yfir á 33. mínútu með marki úr vítaspyrnu áður en Jorge Molina bætti við öðru í byrjun síðari hálfleiks. Molina var aftur á ferðinni á 55. mínútu, áttunda mark hans á tímabilinu.
Mata gulltryggði svo sigurinn á 88. mínútu og þar við sat. Lokatölur 4-0 fyrir Getafe sem er með 31 stig í sjötta sæti en Alaves í fimmta sæti með 32 stig.
Athugasemdir