Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. janúar 2019 11:13
Hafliði Breiðfjörð
FH fær Jákup Thomsen að nýju (Staðfest)
Jákup Thomsen eftir leik með FH í fyrrasumar. Hann er með liðinu í Fótbolta.net mótinu í dag.
Jákup Thomsen eftir leik með FH í fyrrasumar. Hann er með liðinu í Fótbolta.net mótinu í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Færeyski sóknarmaðurinn Jákup Ludvig Thomsen er að ganga í raðir FH að nýju frá FC Midtjylland í Danmörku.

Hann er í leikmannahópi FH sem mætir ÍA í Fótbolta.net mótinu þessa stundina en leikurinn hófst klukkan 11:00.

Thomson kom til FH á láni frá danska félaginu i fyrra og spilaði þá 9 leiki í Pepsi-deildinni og skoraði í þeim þrjú mörk.

Hann yfirgaf félagið svo í haust eftir að lánssamningnum lauk en er núna að snúa aftur og að nýju á láni.

Hægt er að sjá leik ÍA og FH í beinni á ÍA TV

**Uppfært 11:23: FH hefur staðfest komu leikmannsins.



Leikmannabreytingar FH í vetur.

Komnir:
Björn Daníel Sverrisson frá AGF
Brynjar Ásgeir Guðmundsson frá Grindavík
Geoffrey Castillion frá Víkingi R. (Var á láni)
Guðmann Þórisson frá KA

Farnir:
Atli Viðar Björnsson hættur
Eddi Gomes til Henan Jianye (Var á láni)
Rennico Clarke
Robbie Crawford til IFK Mariehamn
Viðar Ari Jónsson til Brann (Var á láni)
Zeiko Lewis
Athugasemdir
banner
banner
banner