Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 19. janúar 2019 12:36
Arnar Helgi Magnússon
Rabiot látinn æfa með varaliðinu
Mynd: Getty Images
Adrien Rabiot, leikmaður PSG, æfir með varaliði félagsins þessa dagana en hann er sagður vilja burt frá félaginu.

Rabiot fór ekki með PSG til Katar í æfingaferð fyrr í mánuðinum en hann sagðist ekki hafa áhuga á því.

Leikmaðurinn átti að skrifa undir nýjan samning við PSG á tímabilinu en hætti við. Það fór ekki vel í stjórnendur félagsins sem eru að refsa honum með að því að frysta hann úr liðinu.

Samningur hins 23 ára gamla Rabiot við PSG rennur út eftir tímabilið og er það orðið ljóst að hann mun leita á önnur mið. Hann mun ekki spila meira fyrir PSG á tímabilinu nema hann skrifi undir nýjan samning.

Thomas Tuchel, þjálfari PSG, lætur hann því æfa með varaliðinu þessa dagana.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner