Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 19. janúar 2019 20:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Emery: Vildum vinna fyrir stuðningsmennina
Mynd: Getty Images
Unai Emery, stjóri Arsenal, var skiljanlega mjög sáttur eftir 2-0 sigur gegn Chelsea í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Arsenal skoraði bæði mörk sín í fyrri hálfleiknum og komst vel í gegnum seinni hálfleikinn. Lokaniðurstaðan verðskuldaður sigur Arsenal sem setur pressu á Chelsea í baráttunni um fjórða sætið.

„Við vildum vinna fyrir stuðningsmennina okkar," sagði Emery.

„Munurinn fyrir leikinn var sex stig og nú eru það þrjú stig. Þessi sigur hjálpar okkur að halda í bjartsýnina," sagði Emery.

„Við getum verið ánægðir með daginn, en við verðum að taka þetta leik fyrir leik."
Athugasemdir
banner
banner