Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. janúar 2019 20:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sarri: Spilamennska sem ég get ekki samþykkt
Mynd: Getty Images
„Ég er mjög reiður með það hvernig við nálguðumst þennan leik," sagði Maurizio Sarri, stjóri Chelsea, eftir 2-0 tap gegn Arsenal á Emirates-leikvangnum í kvöld.

„Þú getur lent í erfiðleikum, en við verðumst að bregðast miklu betur við en við gerðum í dag."

„Þetta er spilamennskja sem ég get ekki samþykkt. Þetta var svipað gegn Tottenham fyrr á tímabilinu."

Sarri segir að leikmennirnir virðist eiga erfitt með að gíra sig upp í svona leiki, en það er erfitt að átta sig á því hvers vegna það er; þetta er Lundúnaslagur gegn Arsenal og stórleikur helgarinnar í enska boltanum.

„Við virðumst eiga erfitt með að gíra upp í þessa leiki. Það er allt í góðu að tapa stundum, en ekki að tapa svona."
Athugasemdir
banner
banner
banner