Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 20. janúar 2019 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Reus: Sjáið mig aldrei hjá Bayern
Reus er orðinn þrítugur.
Reus er orðinn þrítugur.
Mynd: Getty Images
Marco Reus segir að hann verði aldrei nokkurn tímann leikmaður Bayern München.

Reus hefur verið leikmaður Dortmund frá 2012 en á meðan hann hefur verið hjá Dortmund þá hafa margir liðsfélaga hans skipt yfir til Bayern, leikmenn eins og Mario Götze, Mats Hummels og Robert Lewandowski.

Fyrir leikinn gegn RB Leipzig í gær var Reus spurður að því hvort hann myndi einhvern tímann leika fyrir Bayern.

„Þú munt aldrei sjá mig hjá Bayern, ég lofa því," sagði Reus við Frankfurter Allgemeine Zeitung.

Dortmund er á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar með sex stiga forskot. Liðið vann RB Leipzig í gær.

Sjá einnig:
Dortmund ætlar ekki að selja fleiri leikmenn til Bayern
Athugasemdir
banner
banner
banner