Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 20. janúar 2019 11:11
Elvar Geir Magnússon
Sendu njósnara á æfingu hjá Leeds
Njósnað um æfingu Leeds!
Njósnað um æfingu Leeds!
Mynd: Mirror
Mikið hefur verið rætt um játningu Marcelo Bielsa, stjóra Leeds, sem hefur sent njósnara á æfingar hjá andstæðingum sínum.

Breska blaðið Daily Mirror ákvað í kjölfarið að senda njósnara á æfingasvæði Leeds. Ljósmyndari blaðsins faldi sig í runna og tók myndir af því sem gerðist á æfingunni.

Um er að ræða æfingu Leeds síðasta föstudag, daginn áður en liðið tapaði 2-1 fyrir Stoke.

Ljósmyndarinn segir að það hafi verið barnaleikur að fylgjast með æfingunni en leikmenn Leeds höfðu gaman að uppátækinu og hlóu þegar þeir sáu njósnarann!

Hér má sjá þessa sérstöku umfjöllun Mirror.

Leeds hefur aðeins verið að hiksta að undanförnu en er enn á toppi Championship-deildarinnar, fjórum stigum fyrir ofan þriðja sætið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner