Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 20. janúar 2019 14:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Rondon sýndi mikla íþróttamennsku
Mynd: Getty Images
Salomon Rondon, framherji Newcastle, sýndi mikla íþróttamennsku í 3-0 sigrinum á Aroni Einari Gunnarssyni og félögum í Cardiff í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Í stöðunni 1-0 reyndi Rondon skot sem fór beint í höfuðið á varnarmanni Cardiff, Joe Bennett.

Boltinn barst aftur til Rondon en í staðinn fyrir að reyna annað skot eða sendingu fyrir markið, þá sendi hann boltann út af.

Smelltu hér til að sjá atvikið. Fagmannlega gert hjá Rondon.

Varnarmaðurinn Fabian Schar gerði tvennu fyrir Newcastle í gær og Ayoze Perez var með eitt. Aron Einar var allan tímann á varamannabekknum hjá Cardiff.
Athugasemdir
banner
banner
banner