AC Milan er við það að kaupa framherjann Krzysztof Piatek frá Genoa á 31 milljón punda. Félögin ætla að funda á morgun og ganga frá samningum.
Piatek er 23 ára gamall Pólverji en hann hefur slegið í gegn með Genoa á þessu tímabili.
Piatek er 23 ára gamall Pólverji en hann hefur slegið í gegn með Genoa á þessu tímabili.
Piatek á að fylla skarð Gonzalo Higuain sem er á leið til Chelsea á láni fram á sumar.
Higuain hefur verið í láni hjá AC Milan frá Juventus en hann er nú að fara að skrifa undir annan lánssamning á Englandi.
Argentínumaðurinn verður á láni hjá Chelsea fram á sumar en félagið á síðan kost á að framlengja þann lánssamning um eitt ár til viðbótar.
Hjá Chelsea hittir Higuain fyrir Maurizio Sarri, fyrrum þjálfara sinn hjá Napoli.
Athugasemdir