Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. janúar 2019 13:00
Magnús Már Einarsson
Martial færist nær nýjum samningi
Mynd: Getty Images
Anthony Martial er að færast nær því að ganga frá nýjum samningi við Manchester United samkvæmt heimildum ESPN.

Samningaviðræður hafa staðið lengi yfir og nú vonast Manchester United til að Martial skrifi undir nýjan fimm ára samning á næstunni.

United nýtti sér í fyrra klásúlu til að framlengja samning Martial um eitt ár, til ársins 2020.

Hinn 23 ára gamli Martial var orðaður við önnur félög fyrir nokkrum mánuðum eftir að samningaviðræður gengu illa.

Síðustu tvær vikurnar hafa viðræður gengið betur og United vonast til að Martial framlengi samninginn á næstunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner