Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. janúar 2019 12:00
Magnús Már Einarsson
Juventus í viðræðum um að fá Darmian
Mynd: Getty Images
Juventus er í viðræðum um að fá varnarmanninn Matteo Darmian á láni frá Manchester United.

Juventus mun greiða 2,6 milljónir punda fyrir lánssamninginn ef af verður.

Ítölsku meistararnir eiga síðan kost á að kaupa Darmian á 7,1 milljón punda næsta sumar.

Hinn 29 ára gamli Darmian getur spilað sem bakvörður og miðvörður en hann hefur verið hjá Manchester United síðan sumarið 2015.

Hann hefur hins vegar ekki átt fast sæti á þessu tímabili og er tilbúinn að fara aftur heim til Ítalíu.
Athugasemdir
banner
banner