Kevin-Prince Boateng er genginn til liðs við Barcelona frá Sassuolo á láni út tímabilið. Spænska félagið staðfesti þetta á heimasíðu sinni.
Boateng er 31 árs gamall og samdi við Sassuolo á Ítalíu fyrir tímabilið og hefur staðið sig afar vel en hann er með 5 mörk í 15 leikjum fyrir liðið.
Hann hefur leikið með liðum á borð við AC Milan. Schalke, Borussia Dortmund, Tottenham Hotspur og Portsmouth svo einhver lið séu nefnd.
Hann er afar öflugur miðjumaður og hefur átt litríkan feril en hann verður á láni hjá Barcelona út tímabilið og þá getur félagið keypt hann fyrir 8 milljónir evra í sumar.
Transfer news... pic.twitter.com/hNYrKR9nL1
— FC Barcelona (@FCBarcelona) January 21, 2019
🔥 @KPBofficial 🔥 pic.twitter.com/GSZl8aNK3D
— FC Barcelona (@FCBarcelona) January 21, 2019
Athugasemdir