Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 21. janúar 2019 21:35
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Ronaldo klikkaði á víti í öruggum sigri Juventus
Douglas Costa skoraði fyrsta mark Juventus
Douglas Costa skoraði fyrsta mark Juventus
Mynd: Getty Images
Juventus 3 - 0 Chievo
1-0 Douglas Costa ('13 )
2-0 Emre Can ('45 )
2-0 Cristiano Ronaldo ('53 , Misnotað víti)
3-0 Daniele Rugani ('84 )

Juventus vann Chievo nokkuð örugglega með þremur mörkum gegn engu á Allianz-leikvanginum í Tórínó í kvöld. Cristiano Ronaldo fékk tækifæri til að skora á 53. mínútu en brást bogalistin.

Brasilíski töframaðurinn Douglas Costa kom Juventus yfir á 13. mínútu með góðu skoti af löngu færi áður en þýski miðjumaðurinn Emre Can bætti við öðru undir lok fyrri hálfleiks. Fyrsta mark Can síðan hann kom frá Liverpool.

Ronaldo fékk tækifæri til að skora þriðja mark Juventus en hinn afar reyndi Stefano Sorrentino varði frá honum.

Varnarmaðurinn knái, Daniele Rugani, skoraði svo þriðja mark Juventus á 84. mínútu og lokatölur 3-0 fyrir Juventus.

Liðið er í efsta sæti deildarinnar með 56 stig, níu stigum meira en Napoli sem er í öðru sæti.


Athugasemdir
banner
banner
banner