banner
   mán 21. janúar 2019 23:19
Brynjar Ingi Erluson
Tímabilið búið hjá Bellerín - Frá í allt að níu mánuði
Hector Bellerin verður ekki meira með á þessu tímabili
Hector Bellerin verður ekki meira með á þessu tímabili
Mynd: Getty Images
Hector Bellerín, leikmaður Arsenal á Englandi, verður ekki meira með á þessu tímabili og missir líklega af byrjun næsta tímabils eftir að hann sleit krossband.

Bellerín sleit krossband í 2-0 sigri Arsenal á Chelsea um helgina en hann fór af velli á 72. mínútu.

Það sást strax að þetta leit illa út fyrir spænska bakvörðinn en hann er búinn að fara í myndatöku og hefur nú fengist staðfest hversu alvarleg meiðslin eru.

Hann gæti verið frá í allt að níu mánuði og er því ljóst að tímabilið er búið hjá honum.

Bellerín gæti þá misst af byrjun næsta tímabils en þetta er mikill skellur fyrir Arsenal sem er í baráttu um Meistaradeildarsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner