Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 22. janúar 2019 15:00
Magnús Már Einarsson
Ba aftur til Tyrklands - Kynntur með áhugaverðu myndbandi
Mættur aftur í tyrkneska boltann.
Mættur aftur í tyrkneska boltann.
Mynd: Getty Images
Tyrkneska félagið Istanbul Basaksehir hefur samið við framherjann Demba Ba.

Ba hefur verið á flakki síðan hann fór frá Chelsea árið 2014 eftir að hafa skorað frægt mark í leik gegn Liverpool.

Senegalinn lék með Besiktas í Tyrklandi áður en hann fór til Kína.

Hinn 33 ára gamli Ba var síðasta á mála hjá Shanghai Shenhua í Kína en hann er nú kominn aftur til Tyrklands.

Ba var kynntur með áhugaverðu myndbandi hjá Istanbul Basaksehir en sjón er sögu ríkari.

Athugasemdir
banner
banner