Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 23. janúar 2019 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn í dag - Barcelona og Sevilla etja kappi
Mynd: Getty Images
Það er einn leikur í 8-liða úrslitum spænska Konungsbikarsins þennan miðvikudaginn.

Um er að ræða fyrri leik Sevilla og Barcelona. Hann hefst klukkan 20:30 og fer fram á Estadio Ramón Sánchez Pizjuán, heimavelli Sevilla.

Þetta gæti orðið athyglisvert einvígi þar sem Barcelona er á toppi spænsku deildarinnar og Sevilla í fjórða sæti. Sevilla hefur tapað þremur leikjum í röð, en Barcelona hefur unnið þrjá leiki í röð.

Þessi lið hafa mæst í úrslitum keppninnar tvisvar á síðustu þremur árum. Í bæði skiptin hefur Barcelona unnið, síðast 5-0 á síðustu leiktíð.

Leikur dagsins:
20:30 Sevilla - Barcelona
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner