Denis Suarez, miðjumaður Barcelona, hefur verið orðaður við Arsenal síðustu daga.
Sögusagnir hafa verið um að Arsenal sé að fá Suarez á láni út tímabilið með möguleika á því að kaupa hann næsta sumar.
En samkvæmt Edu Polo hjá Mundo Deportivo, sem lýst er sem áreiðanlegum í frétt 101greatgoals, þá hafa viðræður Barcelona og Arsenal siglt í strand.
Suarez á að hafa sagt við Ernesto Valverde, stjóra Barcelona, að hann muni ekki fara frá félaginu í þessum mánuði.
Suarez er 25 ára gamall, en hann hefur aðeins spilað átta leiki í öllum keppnum á þessu tímabili.
Cuando parecía que la salida de Denis Suárez estaba hecha, incluso admitida por Valverde, se rompen las negociaciones entre Barça y Arsenal. El jugador ya le ha comunicado al técnico que se queda https://t.co/dZJ2AjbGl5
— Edu Polo (@EduPolo) January 22, 2019
Negotiations between Arsenal and Barcelona over Denis Suárez’s move to Arsenal have broken down. [Mundo Deportivo] pic.twitter.com/ocmNj09ZZ7
— AFTV (@AFTVMedia) January 22, 2019
Athugasemdir