Selfyssingurinn Jón Daði Böðvarsson hefur fengið aukna samkeppni hjá Reading því félagið var að ganga frá lánssamningi við portúgalska sóknarmanninn Nelson Oliveira.
Oliveira kemur á láni frá Norwich þar sem hann hefur ekkert spilað á tímabilinu.
Hinn 27 ára gamli Oliveira gekk í raðir Norwich 2016 og hefur síðan þá skorað 23 mörk í 71 leik í Championship-deildinni.
„Nelson er sóknarmaður sem er klárlega með þetta mikilvæga drápseðli. Hann þrífst á því að skora mörk," sagði stjóri Reading og landi Oliveira, Jose Gomes
Reading er í harðri fallbaráttu í Championship og er sem stendur í fallsæti. Jón Daði er markahæsti leikmaður Reading á tímabilinu með sjö deildarmörk, en það er orðið langt síðan hann skoraði síðast - í september. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá honum,
Athugasemdir