Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 23. janúar 2019 09:00
Magnús Már Einarsson
Higuain í læknisskoðun hjá Chelsea í dag
Gonzalo Higuain.
Gonzalo Higuain.
Mynd: Getty Images
Argentínski framherjinn Gonzalo Higuain er á leið til Englands þar sem hann mun fara í læknisskoðun hjá Chelsea í dag.

Higuain er á leið til Chelsea á láni frá Juventus út tímabilið. Higuain hefur verið á láni hjá AC Milan í vetur.

AC Milan er að kaupa pólska framherjann Krzysztof Piatek frá Genoa á 30 milljónir punda en hann er þessa stundina í læknisskoðun.

Chelsea mætir Tottenham í enska deildabikarnum annað kvöld en ólíklegt er að Higuain fái leikheimild í tæka tíð fyrir þann leik.

Líklegra þykir að fyrsti leikur hans með Chelsea verði gegn Sheffield Wednesday í enska bikarnum um helgina.

Athugasemdir
banner
banner
banner