Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 23. janúar 2019 21:55
Brynjar Ingi Erluson
Enski deildabikarinn: Man City örugglega áfram í úrslitaleikinn
Sergio Aguero fagnar ásamt Riyad Mahrez
Sergio Aguero fagnar ásamt Riyad Mahrez
Mynd: Getty Images
Burton Albion 0 - 1 Manchester City (0-10)
0-1 Sergio Aguero ('26 )

Englands- og deildabikarmeistarar Manchester City eru komnir í úrslitaleik deildabikarsins eftir 10-0 samanlagðan sigur á Burton Albion.

City vann fyrri leikinn eftirminnilega 9-0 á Etihad-leikvanginum þar sem Gabriel Jesus og Ilkay Gundogan voru allt í öllu.

Sergio Aguero sá til þess að City myndi skora tíu mörk samanlagt er hann kom boltanum í netið á 26. mínútu í kvöld á heimavelli Burton.

Hann skoraði af stuttu færi eftir sendingu frá Riyad Mahrez og reyndist það eina mark leiksins.

Margir ungir leikmenn fengu tækifærið hjá City. Þeir Eric Garcia og Ian Poveda fengu að spreyta sig auk þess sem Arijanet Muric var í markinu og þá spilaði Philippe Sandler einnig en hann er 21 árs gamall Hollendingur sem lék sinn fyrsta leik gegn Rotherham United á dögunum.

Öruggt hjá City í kvöld sem er komið í úrslitaleikinn en liðið mætir Chelsea eða Tottenham Hotspur.
Athugasemdir
banner
banner
banner