Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 23. janúar 2019 22:12
Brynjar Ingi Erluson
Neymar fór grátandi af velli - Ekki með gegn United?
Neymar meiddist illa í kvöld
Neymar meiddist illa í kvöld
Mynd: Getty Images
Brasilíski snillingurinn Neymar fór meiddur af velli er Paris Saint-Germain vann Strasbourg, 2-0, í franska bikarnum í kvöld en óttast er að hann missi af 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Neymar þurfti að fara af velli eftir klukkutimaleik í kvöld en hann lenti þá illa og kom Moussa Diaby inná í hans stað.

Brasilíumaðurinn grét af sársauka og er talið líklegt að hann verði frá lengi frá.

PSG óttast að hann missi af 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en liðið mætir Manchester United.

Fyrri leikurinn er 12. feb en síðari leikurinn 6. mars.


Sjá einnig:
Verratti tæpur fyrir fyrri leikinn gegn Man Utd
Athugasemdir
banner
banner