Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 23. janúar 2019 23:21
Brynjar Ingi Erluson
Reykjavíkurmótið: Fylkir vann þrátt fyrir tvö vítaklúður
Valdimar Þór Ingimundarson skoraði bæði mörk Fylkis
Valdimar Þór Ingimundarson skoraði bæði mörk Fylkis
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Fylkir 2 - 1 Fram
1-0 Valdimar Þór Ingimundarson ('51 )
1-1 Helgi Guðjónsson ('52 )
2-1 Valdimar Þór Ingimundarson ('80 )

Fylkir lagði Fram 2-1 í B-riðli Reykjavíkurmótsins í kvöld en leikið var í Egilshöll.

Fylkismenn fengu tvö gráupplögð tækifæri til að skora en liðið fékk tvær vítaspyrnur. Ragnar Bragi Sveinsson tók báðar spyrnurnar en klikkaði á báðum.

Valdimar Þór Ingimundarson kom Fylki yfir á 51. mínútu áður en Helgi Guðjónsson jafnaði mínútu síðar. Valdimar skoraði hins vegar sigurmarkið á 80. mínútu og 2-1 sigur Fylkis staðreynd.

Fylkir er í efsta sæti með 7 stig en KR í öðru sæti með 4 stig. Fram og Þróttur eru úr leik. KR og Fylkir fara upp úr riðlinum.

Athugasemdir
banner
banner
banner