Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 24. janúar 2019 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Leikmaður Strasbourg: Neymar getur ekki farið að grenja
Neymar grét er hann meiddist gegn Strasbourg
Neymar grét er hann meiddist gegn Strasbourg
Mynd: Getty Images
Anthony Goncalves, leikmaður Strasbourg í Frakklandi, var ekkert sérstaklega hress með Neymar eftir 2-0 tapið gegn Paris Saint-Germain í franska bikarnum í gær.

Neymar fór meiddur af velli eftir einvígi við Goncalves en hann virtist lenda illa og gæti brasilíski sóknarmaðurinn verið frá næstu vikur og jafnvel búist við því að hann missi af fyrri leiknum gegn Manchester United í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Hann var sendur upp á spítala og fór grátandi af velli en Goncalves var ekki sáttur með hann.

„Þetta er stíllinn hans Neymar. Hann er frábær leikmaður en við erum ekki hér til að hafa gaman með honum. Við þurfum að svara með því að nota okkar vopn og við þurfum að verja merkið. Við erum ekki hérna í einhverju gríni og hann getur ekki farið að grenja yfir þessu," sagði Goncalves.
Athugasemdir
banner
banner