Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 08. febrúar 2019 19:19
Brynjar Ingi Erluson
Neuer gæti misst af leiknum gegn Liverpool
Manuel Neuer missir líklega af leiknum gegn Liverpool
Manuel Neuer missir líklega af leiknum gegn Liverpool
Mynd: Getty Images
Manuel Neuer, markvörður Bayern München í Þýskalandi, verður líklega ekki með gegn Liverpool í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Neuer hefur verið lykilmaður í liði Bayern og þýska landsliðsins en hann hefur verið einn besti markvörður heims um árabil.

Hann hefur átt við meiðsli að stríða í síðustu tveimur leikjum og ekki spilað með liðinu í þýsku deildinni og það þykir þá afar ólíklegt að hann spili gegn Liverpool í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„Það er alltaf undir leikmanninum komið hvort hann ákveði að spila eða ekki. Ég spurði hann fyrir leikinn gegn Herthu Berlín hvort hann væri klár og hann var ekki tilbúinn í þetta og líklega ekki í leikinn gegn Liverpool," sagði Niko Kovac, þjálfari Bayern.

„Ég mun ekki nota Manuel fyrr en hann segist vera klár í slaginn," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner