Neil Warnock, stjóri Cardiff, hefur blásið af æfingaferð liðsins til Tenerife.
Cardiff er úr leik í enska bikarnum og á því ekki leik fyrr en föstudaginn 22. febrúar gegn Watford.
Eftir andlát Emiliano Sala vill Warnock að leikmenn Cardiff njóti tíma með fjölskyldum sínum. Hann gaf því frí í stað þess að fara í æfingaferð til Tenerife.

„Eftir það sem gerðist þá vil ég frekar knúsa krakkana mína og konuna því þetta hafa verið langar tvær vikur," sagði Warnock.
„Ég hef aldrei vitað um neitt þessu líkt á ævi minni og ég hef séð ýmislegt. Leikmennirnir eru að átta sig á því sem gerðist og fjölskyldan er mikilvægari en fótbolti er það ekki?"
Athugasemdir