Oldham hefur staðfest ráðningu á Paul Scholes sem knattspyrnustjóra en hann skrifaði undir eins og hálfs árs samning við félagið.
Scholes var stuðningsmaður Oldham í æsku, en það var líka rætt við hann um stjórastarfið þar í október 2017. Þá fékk hann ekki starfið.
Oldham spilar í ensku D-deildinni en liðið siglir lygnan sjó í 14. sæti deildarinnar.
Scholes er 44 ára. Hann vann 11 Englandsmeistaratitla, þrjá bikarmeistaratitla og tvo Meistaradeildartitla sem leikmaður Manchester United.
Scholes hefur lítið þjálfað síðan hann hætti að spila, en hann var um stutt skeið í þjálfaraliði Manchester United.
Here's the news you've been waiting for...
— Oldham Athletic AFC (@OfficialOAFC) February 11, 2019
Latics Appoint Paul Scholes As New Manager! #oafchttps://t.co/Kc4O6jLvxa
Athugasemdir