mán 11. febrúar 2019 15:15
Magnús Már Einarsson
Pochettino ósáttur við dýfu spjöld: Við erum saklausastir
Son Heung-min fékk gult spjald í gær.
Son Heung-min fékk gult spjald í gær.
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, vill meina að leikmenn liðsins hafi fengið ósanngjörn gul spjöld fyrir leikaraskap á þessu tímabili.

Son Heung-min fékk gula spjaldið fyrir leikaraskap í 3-1 sigrinum á Leicester í gær en hann féll eftir baráttu við Harry Maguire.

Pochettino var ósáttur við spjaldið og vildi sjá Son fá vítaspyrnu. Harry Kane, Lucas Moura og Danny Rose hafa einnig fengið gula spjaldið fyrir leikaraskap á þessu tímabili.

„Við erum saklausastir á vellinum. Við erum góðir strákar," sagði Pochettino eftir leikinn í gær.

„Þetta er ótrúlegt. Ég er rólegri núna því við unnum leikinn en ég er svekktur yfir þessu. Allir tala um hin og þessi félög og leikmenn en finnst ykkur eins og við séum lið sem er að reyna að svindla á dómaranum?"
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner